Komið í lagHera

Jæja þá er þessi síða komin í lag eftir rúma sólahring í stafabulli ;) og ég gat auðvitað ekki án bloggs verið því skrappandinn var alveg að gera út af við mig svo ég stofnaði nýtt ;) en það er www.123.is/hera og núna veit ég ekkert hvort ég á að halda áfram hér eða færa mig bara yfir.... hmmm... verð á báðum stöðum til að byrja með og svo verðið þið bara að vera dugleg og kommenta og segja hvað ykkur líkar betur við... díll??? Og svona af því að ég vil vita ykkar skoðun þá ætla ég líka að hafa síðuna opna aftur í bili alla vega.
Kveðja

Vetur konungurHera

Já það er víst vetur... brrr... mér kvarta samt ekkert yfir snjónum sem er því mér finnst þetta bara fínt eins og það er núna :) þarf ekkert meiri snjó hér niður í byggð og svo er líka nægur snjór í fjallinu svo þetta er bara gott. En mér skilst að það sé bara þvílíkur snjór í grindavík núna og leiðindar veður usss við heppin að hafa það ekki hér ;)
Jæja ég verð í fríi í vinnunni á morgun, það er alltaf svo ljúft að fá svona frí á þriðjudegi eftir að vera búin að vinna helgina :) ég kvarta ekki yfir því ;)
Stelpan bara á jákvæðu nótunum núna ;) en samt eitt sem mér þykir miður en það er hvað skrapp andinn er alltaf tregur til að sýna sig. Ég gerði sat eitt kort í fyrradag og svo er ég alltaf að skoða magnolia og Haugla og staungla kort til að fá hugmyndir og það virkar ágætlega :)
Nóg núna...
Hilsen

Lok lok og læsHera

Já eins og ég talaði um í gær þá ætla ég að hafa síðun læsta í óákveðin tíma.  En hvað með það lífið heldur áfram.
Ég var að koma heim úr vinnu sem er bara fínt ;) í morgun var gler á rúðunni og mátti ég skafa og ég hafði nú litla þolinmæði í það svo ég bara skóf bílstjóramegin og ég verð að játa að það var svolítið vont að keyra með svona þröngt útsýni en þetta skánaði þegar ég nálgaðist Hlíð ;)
Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra núna...
kv.

Læsi læs...Hera

Ég var að velta fyrir mér að læsa síðunni í einhvern tíma, mér leiðist svo að það er alltaf nóg af fólki sem skoðar en fáir kvitta. Ef fólk vill skoða þá er bara að senda mér mail og þið fáið aðgangsorðið um hæl. Allaveg þá ætla ég að prufa þetta og sjá svo til hvað ég geri í framhaldinu.
En enga feimni svo ég bít ekkert ;)
Kv.

Svo misheppnuð alltafHera

Já það þarf ekkert að spyrja að því að ég var auðvitað sú misheppnaðasta í morgun... Jú stelpan ákvað að fara snemma út til að skafa héluna af framrúðunni og fór og setti bílinn í gang og fór svo út að skafa. Svo þegar ég ætlaði inn í bílinn þá bifaðist hurðin ekki svo ég hugsaði með mér... nohh helvítið frosin föst.. og fór að kasta mér á hurðina til að fá hana lausa en þá fannst mér hún ískyggilega föst og fannst þetta virka meira eins og hún væri læst. Svo ég fór nú að kíkja inn um rúðurnar og sá þá að bílinn var læstur !!! og í gangi og ég bara með þennan lykil, hinn í Grindavík !!!! Þannig að nú voru góð ráð dýr. Ég sveitavargurinn hringdi í 112 og þar var mér tjáð að lögreglan væri hætt að opna bíla og HVAÐ Á ÉG ÞÁ AÐ GERA!!!! hringdi í 118 og fékk númer hjá einhverju okrara sem kom og opnaði bílinn á 20 sek í mestalagi. Og hvað má ég svo borga fyrir þetta, jú 4000, karl takk + vsk í þokkabót !!! En hann fræddi mig þó á því að bílar eiga þetta til þegar það er frost að læsa sér svona aftur... svo það er um að gera að passa sig vel með þetta ef maður er ekki með aukalykil.
SU stimplabiblían mín var að koma í dag, Hafdís skokkaði með hana til mín þegar póstmaðurinn var búin að koma með pakkann til hennar í kvöld. Svo nú strýk ég föndurbíblíuni áður en ég sofna á kvöldin.. hehe...
Jæja vildi bara deila þessu með ykkur af því ég er nú alltaf svo heppin... hahaha

doppóttar dúllurHera

Hvað á ég að segja ykkur sniðugt í dag ;)  ég óð í það að taka niður jólaskrautið þegar ég kom heim úr vinnu í dag, ég tók reyndar smá pásu og skutlaðist aðeins út og ætlaði svo að taka niður seríurnar og jólagardínurnar en einhvern vegin þá fór ég bara að lita magnolia myndir... hmm Hafdís ég skil það nú ekki alveg.. hehe ;)
Og annað, stelpan vaknaði í morgun og var nú ekki svo bjartsýnasta á það að fara í vinnu út af því hvernig bakið er búið að vera síðustu daga ( og það í 3 daga fríinu sem ég fékk, vel farið með fríið ) en viti menn ég stóð upp og var líka bara þetta bein og fann ekki svo mikið til, er með smá verki og verð að passa mig mjög vel en ég er ekki svona snúin eins og ég var um helgina og það kalla ég bara frábært :) og er ekkert smá ánægð með það.
Nú svo fórum við Hafdís aðeins í A4 og Office1 en þar var lítið að græða get ég sagt ykkur... pfff plebba búðir bara :) 
Svo var ég svo heppin að vera ekki farin að brasa mér eitthvað áðan, ég var auðvitað bara að lita magnolia mynd ;) þegar Hafdís hringdi og mér bara boðið í mat á neðri hæðina, þvílíkur lúxus á gellunni bara ;) takk fyrir mig.
En annars bara allt ágætt og ég kem með meira síðar, er farin að lita fleiri magnolia myndir :) SU litirnir mínir stoppa ekki þessa dagana :)

****Hera

árið byrjar ekki vel og nú er það bakið sem er farið, hversu svektur getur maður orðið. En ég var ekki að gera neitt sem ég ekki má þegar það gerðist, ég var einfaldlega að klæða mig í sokkana í gærmorgun þegar það kom svona sár verkur eins og hnífur stæði í mjóbakinu á mér. Ég gat mig ekki hreyft fyrir sársauka og leit örugglega út eins og snúið hrífuskaft þarna inn í herbergi en svo með tímanum náði ég að standa upp og skakklappast eitthvað. Og í dag er ég ekkert betri og ég er alveg að bilast úr pirringi hér ein heima... finnst allt ömurlegt bara. En það má ekki sökkva sér í þann pakka.
En til að vera smá jákvæð :o) þá kíkti ég til Hafdísar í gær og hún gaf mér 2 magnolia myndir sem hún var að fá og mín fór auðvitað að lita í gær og þær eru bara geggjaðar, núna þarf ég bara að koma þeim á kort, það gerist vonandi fljótlega.
Knús á alla.

2008Hera

Já það er komið 2008 og hvernig finnst ykkur það vera á litin??? í hausnum á mér er það gult.. get ekki skýrt það nánar en mér finnst það bara ;o) þessi pæling er í hausnum á mér þessa dagana ásamt mörgum öðrum sem ég ætla ekki að fara að deila með ykkur ;o) verðið bara að vera forvitin... haha...
Annars er bara þetta lífa fína vetrarveður hér og enginn snjór, ég nokkuð ánægð með þetta svona, hentar mér vel. Langaði í göngutúr í kvöld en hafði mig ekki í það og sé eiginlega svolítið mikið eftir því. En ef það verður svipað veður á morgun þá fer ég í göngu.
Ég er af fara í vinnu í fyrramálið og þá er þessari löngu törn lokið og við tekur 3 daga helgarfrí ;o) mikið hvað ég verð ánægð með það, ég fæ nefnilega aldrei nema 2 daga helgarfrí aðra hvora hegli svo þetta verður tilbreyting ;o)
Jæja ég ætla að láta þetta duga í dag.. ja kannski kvöld.
Hilsen og muna... hvernig er árið 2008 á litin???

bless bless gamla árHera

þá er árið nánast búið og ég vil bara þakka öllum sem þekkja mig fyrir gott ár og vona að við eigum eftir að eiga margar góðar stundir á því nýja.
Farið varlega í rokinu í kvöld.

Gleðilegt nýtt ár

nú árið er liðið.....Hera

eða svona næstum því... nokkrir aumir dagar eftir :o)
Ég er búin að vera vinna síðan á 3ja í jólum og verð að vinna fram til 3.jan, stuð í því ekki satt ;o) hef aldrei á minni ævi unnið á nýársdag :o)
Ég er búin að vera að dúllast með SU litina sem ég fékk í jólagjöf og þeir eru draumur og ég tala nú ekki um blenderpennana :o) sæla bara :o) ég þarf að fara að taka mydnir af því sem ég hef verið að dúlla mér í og setja á föndursíðuna fyrir ykkur að dást að.. hehe..
Annars bara rólegt :o)
Hilsen þar til næst :o)

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Hera
  • Um mig: Ég er vestfirðingur sem bý á Akureyri þessa dagana en hvað ég geri í framtíðinni veit ég ekki. Ég er alltaf að fá nýjar og nýjar hugmyndir um það ;o) þeir sem þekkja mig vel vita hvað ég er að tala um.

Dagurinn í dag


Dagurinn í dag er dagurinn þinn.
Þú getur gert við hann hvað sem þú vilt.
Gærdagurinn áttir þú.
Honum getur þú ekki breytt.
Um morgundaginn veist þú ekki neitt.
En daginn í dag átt þú.
Gefðu honum allt sem þú megnar,
svo einhver finni í kvöld
að það er gott að þú ert til.

Könnun

Á ég að selja kortin mín ??

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur